Tjáningar og þjáningar Dóru

Allt stórt skeður í kyrrþey

24.01.2009 01:07:12 / dagbok

Gleðilegt nýtt ár :)

Halló halló....
Ætli það sé einhver sem hefur enn veika trú á mér og kíkir hér inn einstaka sinnum?
Það kemur í ljós núna þegar ég blogga ;)

Það hefur nú ýmislegt gerst hjá mér síðan á síðasta bloggi ;) ég er búin að vera hótelstjóri, búin að hætta sem hótelstjóri...orðinn kennari og er enn kennari :D er í góunefnd og er komin í kvennakór.

Hef lítið sem ekkert djammað og er engan vegin að standa mig í slúðrinu. Það er mjög svo reglulegir dagar hjá mér þessa dagana.

Ég er sem sagt að kenna 3. bekk núna og það er mjög gaman, þó það taki mjög á taugarnar stundum. Það koma oft ýmis gullkorn :D

Ég verð víst að kyngja því að ég er að verða 25 ára á þessu ári og meira að segja bara eftir rúmar 2 vikur. Það fannst mér pínu tilhugsun, ekki vegna þess að ég sé að deyja úr elli...heldur vegna þess að þegar maður er orðinn 25, þá er maður ekki lengur rúmlega tvítug...heldur að verða þrítug. Það er eitthvað svo stór tilhugsun. En allavega, þá fékk ég eitt komment frá nemanda mínum um daginn. Ég var sem sagt að segja honum að ég þekkti ömmu hans, því hún var að elda í mötuneytinu þegar ég var á heimavistinni í 8-10 bekk. Þá bjó ég í Nesjaskóla og fór svo með rútunni út á Höfn í Heppuskóla. Þá horfir hann skringilega á mig og segir með mikilli sannfæringu "það voru ekkert til rútur þá" !!!!!! Fyrirgefðu...hvað heldurðu að ég sé  gömul!!!!!!! Smá skellur það, en grey drengurinn tengdi mig örugglega bara við ömmu sína ;)

Jæja, ég ákvað að deila með ykkur þessari sögu hér svona til að athuga viðbrögðin hér, hvort það sé einhver að fylgjast með mér og hvort það mundi einhver vilja að ég skirfaði meira hér inná. Nenni því ekki bara fyrir sjálfa mig :)

Knús til þín sem lest þetta :) takk fyrir að muna eftir mér, vinsamlegast kommentaðu :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 23:40:01 / dagbok

Ótrúlegt en satt, ég er á lífi :)

Jæja gott fólk. Ég verð að viðurkenna upp á mig sökina að það er MJÖG langt síðan að ég bloggaði síðast, en það hefur margt gerst síðan síðast, svo margt að ég hef ekki haft tíma til að blogga. Svo núna þegar ég ætlaði að henda inn bloggi, þar sem ég má eiginlega enn ekki vera að þessu, þá er búið að breyta öllu inná síðunni (blogcentral) allt orðið svo tæknilegt að ég þurfti að fara að finna út hvernig ég ætlaði að blogga, en ekki bara hvað.

En allavega, það var mikið gaman og mikið fjör úti í Danmörku. Janúarmánuður kláraðist með rosapartý og febrúar hófst með látum á sviði...það var leikhúsvika þar sem við settum upp söngleik á 4 dögum. Það hafðist og varð bara ótrúlega flott, frumsamið eftir nemendur, byggður á bítlalögunum. Geggjað cool. Síðasta sýningin var á afmælinu mínu kl 2. Ég fékk frí í þeirri sýningu þar sem ég þurfti svo að fara í loftköstum út í bíl, vinkona mín keyrði mig út á rútustöð í Horsens svo ég gæti tekið rútuna beint til Sigrúnar og Skúla. Ég rúllaði inn í íbúðina þeirra í stresskasti um 5 leitið, hamaðist við að gera mig sæta á meðan gestir hrúguðust inn og náði að setjast niður kl 17:45 með rauðvínsglas og gúffa því í mig áður en við tókum taxa rúmlega 18:00 á leið á Þorrablót Íslendinga í Århus. Það var geggjað gaman, ball með Á Móti Sól, þeir standa nú alltaf fyrir sínu :) við vorum svo komin heim um 3:30 og eftir smá spjall og svona, fórum við að sofa. Daginn eftir 10.2. flaug ég svo heim til Íslands í atvinnuviðtal hjá Fosshótelum, skrifaði undir samning sem nýr hótelstjóri á Fosshótel Skaftafell (þar sem þeir voru að leigja reksturinn af Önnu og Jóni) og flaug svo aftur út á miðvikudagsmorgni. Svo tók við skólinn á fullu, þarna var ég búin að missa svolítið úr, þurfti því að taka mig svoldið á til að ná að gera allt sem mig langaði (það tókst samt ekki) Ég fór með Sigrúnu og co. í heimsókn til Anette og Lennert, það var geggjað hugguleg helgi, bara í leti og notalegheitum. Svo var bara lokahelgin eftir, þá var djammað helling og svo að sjálfsögðu lokadjammið kvöldið áður en við fórum. það var rosa gaman. En ég flaug sem sagt heim 29. feb með Sigrúnu með sem burðardýr, Pabbi og Steina biðu eftir okkur á flugvellinum og við keyrðum austur á tveim bílum um nóttina ásamt Rögga, Jimmy, Sólrúnu og Rakel, sváfum lítið þá nótt, svo var góuhóf næstu nótt og allir búnir á því á sunnudaginn. Sigrún neyddist þó til að fara í bæinn aftur til að taka flug út á mánudagsmorgun. Svo tók ég mér rúma viku í að lenda, kaupa mér bíl, heimsækja Júlí og eyða frábærri helgi með Hugrúnu, Trausta og Sigursteini Ingvari. Í gær var svo minn fyrsti vinnudagur sem Hótelstjóri hér á Fosshótel Skaftafell. Brjálað að gera og ég vil því ekki lofa að ég bloggi mjög oft en ég skal gera mitt besta. Enda kannski ekki gaman að blogga um vinnuna ef maður gerir ekkert annað.

Þetta var svona stiklað á MJÖG stóru en nú verð ég að fara að sofa, áður en ég hrin hér niður á gólfið í skrifstofunni :) heyrumst :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 16:05:31 / dagbok

Sorgardagur

Ég er enn í sjokki eftir þær hörmulegu fréttir sem bárust mér í matsalnum fyrr í dag. Þar var ég í sakleysi mínu ad slafra í mig kebab pizzu ala eldhús og frábæru pastasalati, þegar þessu var kastad fram.

 

Heath Ledger er látinn.

Ég hélt fyrst ad fólk væri að grínast, það hlýtur að vera, hann er ekki nema ári eldri en Sigrún systir (= hefði orðið 29 ára í ár), einn af mínum uppáhaldsleikurum, í fyrra var hann í topp 100 most sexy actors in the world. Þvílík sóun að svona fallegur, hæfileikaríkur, ungur maður sé farinn frá okkur. En til að vera viss fórum við Pernille inn á netið til að tékka á þessum fréttum og þar stóð þetta svart á hvítu...hann fannst látinn í íbúð sinni í gær. Með svefntöflur við hlið sér, það eru reyndar margar útgáfur af fréttinni og ég vil helst hallast að þeirri að hann hafi verið með eitthvað lungnavandamál og þessvegna hafi hann lognast útaf. Ég neita að viðurkenna að hann hafi viljandi framið sjálfsmorð, það passar nefnilega ekki alveg þar sem hann hafði verið úti að borða með nýju kærustunni um kvöldið en finnst svo nakinn, liggjandi á maganum (úúú, það hefur verið sexy rass), í rúminu þegar hreingerningarkonan kemur að honum ásamt nuddkonu sem hann hafði pantað til sín og vildi ekki fara inn óboðin þegar engin kom til dyra. Þú pantar þér ekki nudd rétt áður en þú ætlar að kála þér....auk þess að ég mundi ekki kála mér nakin upp í rúmi. Þannig að ég vil meina það að þetta hafi ekki verið sjálfsmorð, það passar einhvernvegin ekki.  

En annars er lítið að frétta af mér, ég fór til Århus um helgina og gerði nákvæmlega ekki neitt alla helgina. Fór einu sinni út að leika með krökkunum, bakaði djúsí pizzu með Sigrúnu og einnit skelltum við í 5 falda uppskrift af pönnnukökum svona upp á grín og vegna þess að það komu gestir í kaffi sem gleyptu þær jafn óðum af pönnunni ;)  Ég kom svo til Uldum um hádegi á mánudeginum, þar sem tímarnir byrjuðu ekki fyrr en kl 12:30. Á mánudagskvöldið fórum við svo saman í keilu ca. 45 manns úr skólanum. Það var rosa gaman, ég get ekki sagt að ég hafi verið góð, en ég get sagt að ég hafi ekki verið verst ;) var nr 3 af 6, á minni braut. Er svo bara búin að vera að taka því rólega en það er stefnt á rosa party næstu helgi, teknópartí niðri í caféinu og það er fullt af nemendum síðan fyrir jól að mæta á svæðið :D það verður geggjað gaman. Jæja, best að hafa þessa færslu bara svona temmilega langa, aldrei þessu vant. Vildi bara deila með ykkur þessu sjokki yfir því að svona mikill kynþokki hafi yfirgefið jörðu.  Annars vona ég að þið hafið það gott dúllurnar mínar :) kommentið endilega á fullu :D


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 18:00:09 / dagbok

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla

Ég ákvað að skrifa hér aðeins fréttir af mér þar sem ég hef ekki mátt vera að því eða nennt að vera mikið á netinu undanfarið. Auk þess finnst mér alveg með eindæmum leiðinlegt að skrifa langa pistla á danskt lyklaborð, þannig að ég geri það oftast á tölvuna mína og tengi hana svo við netið, en vegna aldurs hennar er það smá vesen og verður til þess að ég skrifa sjaldnar.  En allavega, ég átti alveg æðisleg jól í Århus hjá Sigrúnu og co. Þetta var ekkert smá huggulegt þar sem við höfðum okkar eigin íbúð beint á móti íbúðinni þeirra Sigrúnar og Skúla. Þannig að við höfðum okkar pláss en gátum samt bara trítlað á milli á náttfötunum (sem ég gerði mjög oft) þann 27. des skruppum við í heimsókn til fjölskyldunar hennar Majken, það var rosa gaman að hitta þau öll, fengum líka frábæran mat, mig minnir að það hafi verið 9 réttir sem ég smakkaði. Við keyrðum bara heim um kvöldið og eftir það var þetta bara slökun. Mamma, pabbi og Steina fóru svo heim kvöldið þann 30. des. Það var frekar erfitt að kveðja þau aftur en ég veit að tíminn líður mjög hratt og ég verð komin heim áður en ég veit af, ætti eiginlega frekar að hafa áhyggjur af því að kveðja Sigrúnu, Skúla og krakkana. Það er búið að vera ÆÐI að vera svona nálægt þeim og ég vildi óska að ég þyrfti ekki að yfirgefa þau svona fljótt. En það er óþarfi að velta sér upp úr því strax.  Áramótin voru bara huggulegheit út í gegn. Við borðuðum góðan mat, fórum út að skjóta upp flugeldum með krökkunum. Þau stóðu sig bæði eins og hetjur þar, ekkert mikil hræðsla þrátt fyrir srpengingar og læti. Við fórum svo inn að hátta hetjurnar og þegar þau voru sofnuð, horfðum við á annálinn á stöð 2 og svo íslenska annálinn á rúv. Það er grínþáttur endursýndur í danska sjónvarpinu á hverju ári rétt fyrir áramót, algjör snilld. Svo var komið árið 2008 í Danmörku. Við fórum út í glugga, út á svalir og skiptumst á að rölta okkur aðeins út til að horfa á flugeldana. Svo þegar við vorum öll komin inn, þá passaði það að við gátum horft á íslenska árið hverfa og koma aftur inn ;) þá var komið árið 2008 á Íslandi. Þá horfðum við á áramótaskaupið, aðeins á eftir áætlun, en hvað um það. Það var nú reyndar betra en ég bjóst við því miðað við sum nöfnin sem voru nefnd í tengslum við skaupið þetta árið. Á meðan að á þessu stóð vorum við að pússla :D fyrsta skipti sem ég geri það á gamlárskvöldi, en bara mjög huggó :D  Ég var svo í leti hjá Sigrúnu og Skúla fram að skólabyrjun, sem var laugardagurinn 5. jan. Þá keyrðu Sigrún og Guðjón Steinn mig í skólann aftur. Það var voða kósi að koma aftur. Fyrsta vikan fór aðalega í að taka vel á móti nýjum nemendum, með alls kyns partýum, leikjum og huggulegheitum. Þetta Laugardagskvöld var t.d. sett upp “speed dating” eða eins og við segjum á góðri íslensku “hraðstefnumót” til að kynnast aðeins, nýir og gamlir nemendur. Við fengum blað með fullt af spurningum sem við máttum nota til að hjálpa okkur en þurftum þess ekki. Fyrsta spurningin á þessu blaði var “hvað er undir rúminu þínu heima hjá þér?”  og eins og margir sem þekkja mig vita finnst mér MJÖG gaman að gera stráka vandræðalega. Þannig að ég segi við stelpurnar “vá hvað það væri findið ef það væri strákur að spyrja þessarar spurningar að svara bara alveg grafalvarleg : Víbradorinn minn.” Stelpurnar fóru að horfa í krinum sig og sögðu svo að næst ætti Jesper að koma til mín, strákur sem var í skólanum fyrir áramót, en ég þekki ekki mikið. Þær sögðu að ég yrði að  svara honum svona ef hann spyrði, ég sagðist ætla að sjá til. Þegar hann var svo nýsestur skellti hann fram fyrstu spurningunni: “hvað er undir rúminu....” og ég svaraði alveg ísköld: “víbradorinn minn”.  Fyrst sagði hann bara ok, eins og ég hefði bara sagt ryk en svo allt í einu leit hann á mig eins og ég væri geimvera, varð alveg eldrauður í framan og stamaði ...h...ha....hva...hvað sagðiru? Ég gat ekki haldið andlitinu lengur og sprakk úr hlátri, sagði honum að ég hefði bara verið að rugla í honum. Ok sagði hann þá vandræðalegur og reyndi að lesa næstu spurningu en gat það enganvegin, leit svo loks upp á mig og stamaði út úr sér “af hverju varstu að þessu, nú get ég ekki hugsað um neitt annað” HAHAHAHA...strákar, svo einfaldir greyin.  Núna síðasta helgi var líka mjög góð. Á föstudagsmorgun fórum við í leik þar sem maður fékk miða á bakið á sér og maður átti að ganga á milli og spyrja fólk spurninga til að komast að því hver maður er, það varð að vera já-nei spurning, þegar maður var búin að finna út hver maður var, þurfti maður svo að finna hinn helminginn af sér, þetta voru nefnilega allt þekkt pör. Ég var búin að vera í geðveikum vandræðum með því hver ég var þar sem ég var búin að fá að vita að ég var ekki manneskja, dýr, ævintýrapersóna, vélmenni, brúða né persóna, var búin að fá að vita að ég væri í raun og veru ekki til.....WHAT? en svo kom Pernille kennari til mín og sagði að við værum par, þá komst ég að því að hún var hægri en ég var vinstri. HVERNIG ÁTTI ÉG AÐ FATTA ÞAÐ????? Og eina ástæðan fyrir því að hún fattaði sitt var af því að hún sá bakið á mér.  En allavega þá var um kvöldið parakeppni í borðfótbolta, pílukasti og billjard, en það sem var erfitt við þetta var að við vorum bundar saman á hönfunum. Við ákváðum að taka borðfótboltan og töpuðum honum reyndar ;) en þetta var mjög gaman. Laugardagurinn var líka snilld, þá var búið að úthluta heimavistunum eitthvað ákveðið þema. T.d. var mín vist með sjóræningja, við vorum búin að gera geggjað flott sjóræningjaþema í eldhúsinu okkar, með flöggum, reipum, rommi, fallbyssu, fjársjóðskistu, sjóræningjatónlist og vörpuðum “Pirats of the Carabian 2” upp á vegginn. Svo áttum við að flakka á milli eldhúsa, allir saman. Við byrjuðum á að heimsækja prinsa og prinsessur, fórum svo í gangster casino, sátum svo lengi hjá okkur og enduðum þetta í íþróttaþema áður en við fórum niður í caffeið.  Annars er ég svo búin að vera hálf lasin í 3 daga, en er að jafna mig núna. Það er búið að vera partý hér tvö kvöld í röð vegna þess að Jacob er búinn að vera í heimsókn (einn af þeim sem var hér fyrir áramót) ég kíkti aðeins niður í gær og það var bara mjög huggulegt. Annars er svo framundan ferðahelgi, þar sem við erum búin aðeins fyrr á föstudegi og byrjum aðeins seinna á mánudegi. Þannig að það eru næstum allir sem eru að fara heim um helgina. Ég ætla að skreppa aðeins til Århus til Sigrúnar og co. Það verður mjög kósí :D eins og alltaf. En nú ætla ég að fara að hætta þessu, svo að það nenni einhver að lesa þetta ;) ég biðst afsökunar á fáum en löngum færslum en það er bara svona, þegar ég byrja, þá er nóg að segja, þetta er bara spurning um að koma sér að verki. Hafið það gott öllsömul og endilega commentið :D gestabókin er líka opin og má gjarnan nota hana :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 13:40:58 / dagbok

Smá jólafærsla

Jæja, það er orðið ansi langt síðan ég skrifaði síðast, en það er bara búið að vera svo brjálað að gera hjá mér að ég hef lítið sem ekkert verið á netinu. En svona stiklað á mjög stóru: Þá helgina 8. des var sviðsett brúðkaup í skólanum hjá okkur. Föstudagskvöldið fór í steggja og gæsadjamm ;) svona vasaútgáfa. Laugardagurinn fór svo allur í brúðkaupið þar sem allir voru með hlutverk, ég var frænka brúðgumans, kærasta Ingþórs (vorum íslenskt par) sem áttum 15 ára gamla dóttur og við áttum bæði að vera frekar kát í víninu ;) Þetta var rosa gaman, held reyndar að toppurinn á veislunni var þegar ein sem átti að vera ófrísk, hélt ræðu og endaði hana með því að tilkynna hver pabbinn væri, hef aldrei séð einn dreng eins hissa, en þetta var allt í lagi þar sem þetta var allt í plati :D            Helgin eftir var ansi stór, föstudaginn 14.des fór kórinn til Horsens að syngja í jólabænum, um kvöldið var svo julefrokost í skólanum og djamm á eftir það. Á laugardeginum var foreldradagur þar sem við vorum á fullu, kórinn að syngja, við spiluðum jazz og blues, sýndum dans og leiklistarhópurinn sýndi sín verk. Auk þess voru sýningar í kjallara skólans úr öðrum áföngum. Sigrún og krakkarnir komu í heimsókn á sýninguna, það var rosa kósí að fá þau í heimsókn, ég var eini íslendingurinn sem fékk heimsókn :) Svo um kvöldið var galaball, með rosaflottum mat, frír bar og alles. Sunnudagurinn var svo nokkuð rólegur, fyrir utan það að ég var að gera kynningu um Ísland því við áttum að hafa morgunstund á mánudeginum. Við byrjuðum sem sagt mánudaginn á því að kynna landið okkar, svo fór kórinn til Vejle að syngja. Um kvöldið var partý á einni heimavistinni. Á þriðjudaginn var svo rave party í einu herberginu. Á miðvikudaginn fór kórinn í morgunmat til kennaranns, það var rosa kósí. Miðvikudagurinn var síðasti dagurinn hans Jóns (einn af Íslendingunum) svo það var aðeins spilað og skálað :)             Fimmtudagurinn var síðasti dagurinn og þá var hreingerning um skólann, flott máltíð með ýmsum uppákomum, þar sem nemendur gerðu grín að kennurum og kennarar af nemendum. Svo komu mamma, pabbi og Steina á föstudaginn að sækja mig og núna erum  við öll hjá Sigrúnu og co. Að halda hugguleg jól. Ég ætla ekki að skrifa meira núna þar sem enginn má vera að því að lesa langlokur núna, mikið að gera að borða nammi ;) auk þess þarf ég að fara að koma mér í jólabaðið og gera mig fína og sæta :) Þannig að ég segi bara Gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár, þakka allt gamalt og gott, hafið það sem allra best yfir hátíðirnar, endilega ef þið hafið ekkert að gera í jólahuggunni ;) sendið mér eins og eitt komment :D Knús og koss til allraDóra

» 6 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 13:34:06 / dagbok

Bloggmet, ég myndi finna mér eitthvað gott til að maula á meðan lesið er, þetta mun taka tíma ;)

Takk fyrir kommentin ;) gaman að sjá að fólk hefur enn trú á mér og kíkir inn öðru hverju ;) En, já já já, ég veit, ég er engan vegin að standa mig í þessu hér, en það er bara svo margt að gerast að ég hef ekki haft tíma eða nennu að sitja og hanga á netinu í langan tíma og þar sem ég hef dregið það svona lengi, þá þarf ég ansi langan tíma til að komast yfir allt sem ég ætlaði mér. En allavega, þar sem að það er liðið mjög langt síðan ég skrifaði síðast og ég reikna með að allir sem lesa þetta eiga sér eitthvað líf, þá ætla ég að hraðspóla yfir helstu atriðin til að þetta verði ekki þriggja tíma lestur fyrir ykkur.

Föstudaginn þann 9. nóvember voru jazztónleikar fyrir skólann í samkomuhúsinu og við sem vorum (erum búin að skipta) í áfanganum jazz og blús áttum að hita upp fyrir þá. Það gekk alveg ágætlega að spila en þetta kvöld var mjög erfitt fyrir taugarnar mínar þar sem ég var að reyna að flýja ákveðinn dreng sem lét mig ekki í friði, var alveg staðráðinn í að stela hjarta mínu (ég hef aldrei fengið eins stórar grænar bólur á rassinn) ég ætla ekki að fara út í smáatriði hér þar sem þá yrði þetta sjö tíma lesning enda eru margir búnir að fá söguna, ef þið viljið fá að heyra hana, vinsamlegast hafið samband í maili ;)             

 Laugardagurinn fór svo bara í slökun og að pakka niður fyrir Strasbourgferðina, smyrja nesti og ýmislegt dúllerí. Á sunnudagsmorgun var svo ræs fyrir allar aldir, morgunmatur klukkan 5:00 og brottför kl 6:00, það hafðist allt saman og það var mjög þreyttur hópur sem hraut í kór þegar rúturnar tvær voru lagðar af stað. Eftir ca. 14 tíma rútuferð komu allir frekar sjúskaðir á hótelið og fengu herbergin sín. Hópurinn fór svo í nokkrum hópum í skoðunarferð um nánasta nágrenni, sumir vildu endilega smakka franskan bjór og því var leitaður uppi bar sem var nú hægara sagt en gert, það var næstum allt lokað. Það var farið frekar snemma í háttinn þetta kvöld enda allir frekar þreyttir eftir ferðalagið.  

Á mánudeginum fórum við svo í skoðunarferð með leiðsögukonu sem talaði ensku með svo miklum frönskum hreim að hún var nánast óskiljanleg. Við fengum svo ágætis hádegishlé og við vorum nokkur sem skelltum okkur á veitingastað þarna niðri í bæ, það var frekar furðuleg lífsreynsla þar sem við byrjuðum á því að panta og ákváðum að taka þetta með stæl, pöntuðum öll mismunandi rétti og ætluðum að borða þetta saman, ákváðum líka að fá okkur eitt rauðvínsglas (á mann) svona til að upplifa frönsku stemminguna almennilega. Við fengum óhrein glös (þá er ég að meina með varalit og alles) og þjónninn skipti um þau allavega tvisvar en samt voru þau ekki hrein og starfsfólkið þarna hafði örugglega aldrei heyrt orðið “pússa” né “þurrka” því það voru svo stórir hvítir vatnsblettir á öllu. Martha ætlaði að kroppa eitthvað korn af sínu glasi og þá brotnaði glasið, frekar findið. Sem betur fer var hópurinn með ágætis húmor yfir þessu öllu og við gátum bara hlegið. Við báðum í vatn í könnu en enginn hafði löngun til að drekka það því það flaut ryklag ofan á vatninu, greinilegt að vatnskönnurnar eru ekki mikið notaðar. Maturinn kom svo og hann var reyndar mjög góður og við kláruðum allt sem við pöntuðum. En það voru tvö önnur úr hópnum sem sátu á örðu borði og það tók heila eilífð fyrir þau að fá matinn sinn og þegar þau loksins fengu hann voru þau orðin svo sein að þau ætluðu að skófla honum í sig, en þá fundu þau pöddu í salatinu og þá er ég sko ekkert að tala um neinn maur, þetta var eitthvað kvikindi á stærð við kakkalakka, en var þó ekki svoleiðis kvikindi. Þau fengu matinn frían en höfðu að sjálfsögðu ekki list á því að borða meira svo að við fórum bara, hlupum til að hitta hópinn því við áttum að fara í siglingu, en þegar við komum var búið að fresta þeirri ferð útaf einhverju í  sambandi við vatnshæðina í ánni. Þannig að við fengum bara frjálsan tíma það sem eftir var dagsins. Við ákváðum að fara að skoða dómkirkjuna sem var mjög flott og við vorum meira að segja fjögur sem ákváðum að skella okkur upp í turninn og byrjuðum að rölta upp hringstiga sem var svo gamall að hann var sums staðar aðeins dældaður í miðjunni þar sem mesta álagið er þannig að ég varð eiginlega bara sjóveik af því að labba of hratt. 330 tröppum síðar vorum við komin upp á kirkjuna, hæsti turninn var reyndar lokaður en það var rosa gaman að standa þarna uppi og horfa yfir. Á leiðinni niður varð ég svo geðveikt ringluð því að ég þurfti að passa mig á að stíga rétt í tröppurnar og horfði því oft niður á tærnar á mér og að labba niður svona langt í hring er frekar óþæginlegt. Restin af deginum var bara notaður til að rölta í rólegheitum, skoða í búðir, fá sér kakó og ýmislegt huggulegt. Við borðuðum alltaf kvöldmat á hótelinu og guð minn góður ég hef aldrei borðað eins leiðinlegar máltíðir, það er ekki hægt að segja að maturinn þarna hafi verið vondur, hann bragðaðist bara nákvæmlega EKKI NEITT, þannig að við reyndum að bjarga honum með salti og tómatsósu en þá var bara eins og maður væri að borða saltaða tómatsósu. Ég held að það þurfi snilling til að ná að elda svona bragðlausan mat, við vorum að tala um að kaupa salt og gefa eldhúsinu, því það væri greinilega mikið hallæri í gangi þar.  

Á þriðjudeginum fórum við svo að heimsækja franskan vínbónda sem er með stóra vínframleiðslu, það var mjög áhugavert að sjá hvernig þetta fer fram, hann flytur út vín til 24 landa, bæði hvítt og rautt. Við fengum að smakka 3 tegundir af hvítvíni um leið og hann var að útskýra ýmislegt í sambandi við samsetningu á bragði og hvað ætti að drekkast með hvaða mat, ég skildi það reyndar ekki allt, þar sem hann talaði eingöngu frönsku og svo var kona að túlka það yfir á dönsku. Eftir hádegismat fórum við svo í siglinguna sem við áttum að fara í daginn áður, það var alveg ágætt, en þó hef ég alveg gert ýmislegt skemmtilegra, við sátum í báti með glerlofti og sigldum eftir á með heyrnatól að hlusta á einhverja kellu segja frá húsum og fleiru á ensku. Það voru alveg einstaklega óþæginleg sæti í bátnum, auk þess sem að kallinn sem sat fyrir framan mig var að sofna og ég þurfti að halla mér geðveikt mikið afturábak til að hann lægi ekki bara í fanginu á mér. Restina af deginu áttum við svo bara fyrir okkur.             

 Miðvikudagurinn byrjaði á því að við fórum að heimsækja Evrópuþingið, það var rosa flott að koma þar inn, við byrjuðum samt að hlusta á tvær konur tala í 2 tíma á dönsku um hvernig Danmörk virkaði í Evrópuþinginu, ég átti mjög erfitt með að halda mér vakandi þar, því ég skildi ekki nærri allt sem þær sögðu og hafði engan áhuga á þessu efni. En svo fengum við að setjast inn í þingsalinn og hlusta á umræður, þar gat maður valið um að hlusta á öllum tungumálum sem eru í Evrópusambandinu, það var mjög gaman að sjá og heyra hvernig þetta gengur fyrir sig. Eftir hádegismat fórum við svo í heimsókn í Kronenburg verksmiðjuna, þar sem við fengum nákvæma útskýringar á því hvernig bjór verður til, fengum að smakka maltið sem er notað (kornin) og skoða önnur hráefni. Við gengum svo um og skoðuðum ferlið, skoðuðum hús stofnendanna, sem er safn núna, þar var margt mjög flott. Við enduðum svo á barnum þar sem við fengum bjórsmökkun, þetta var mjög gaman. Um kvöldið ætluðum við svo að fara öll saman að skemmta okkur þar sem þetta var síðasta kvöldið í Frakklandi en það tókst ekki mjög vel því við lentum á einhverjum leiðinlegum dyraverði sem hleypti bara inn þeim sem honum hentaði og það endaði með því að það var hluti af hópnum úti og þar á meðal ég, þar sem hann neitaði okkur (hóp) fyrst að fara inn án þess að gefa ástæðu fyrir því, vildi okkur bara ekki inn en hleypti svo sumum inn en ekki öðrum. Ég með mína þrjósku ákvað þarna á stundinni að fyrst hann vildi mig ekki inn, þá skildi hann sko ekki fá krónu frá mér og harðneitaði að reyna aftur. Það endaði með að við vorum nokkur sem fórum bara heim á hótel aftur að spila.            

Á fimmtudaginn var svo frjáls tími fyrir hádegi, þurftum þó að vera búin að tæma herbergin fyrir klukkan 9:00 og rúturnar fóru svo milli 13:00 og 14:00, þá tók við önnur 14 tíma rútuferð. Við vorum komin heim rúmlega 3:00 um nóttina, allir mjög myglaðir. Á föstudaginn var frí svo ég fór til Århus og eyddi helginni hjá Sigrúnu, við tókum eitt innkaupaæði og versluðum jólagjafir, auk þess sem ég verslaði aðeins fyrir Hugrúnu og co.             

Vikan á eftir minnir mig að hafi bara verið nokkuð venjuleg, föstudaginn 23. nóvember kom hljósveit að spila fyrir okkur í tónlistarhúsinu og það var rosa gaman, við sátum og spjölluðu, sungum, hlógum, það var dansað á gólfinu, borðunum og úti, bara eftir hentugleika. Mikið grín og mikið gaman. Á laugardeginum var svona eins konar öskudagur, það byrjaði með ýmsum leikjum um daginn og svo áttum við að mæta í búning um kvöldið og slá köttinn úr tunnunni. Ég og Ingþór vorum tvíburar á ströndinni, ég var lítil strandstelpa í pilsi með tíkó (sem hann gerði í mig) og hann var í stuttbuxum, bol og með froskalappir. Það var frekar findið að sjá hann ganga afturábak upp stiga og það vissu alltaf allir hvar hann var því það heyrðist í honum langar leiðir...flapp flapp flapp þegar hann labbaði. Ég fékk kórónu þetta kvöld, veit samt ekki alveg fyrir hvað, held að ég hafi verið síðasta stelpan sem sló í tunnuna áður en hún sprakk.  Þetta var rosa skemmtilegt kvöld.             

Mánudaginn 26. nóvember skiptum við svo um fag í A-faginu, sem sagt, ég hætti í jazz og blús og byrjaði í kór. Það er rosa gaman, við erum að syngja lög úr “Hárinu” , fullt af jólalögum og ýmislegt fleira. Við syngjum meira að segja pínu á íslensku, lagið “við kveikjum einu kerti á” er nefnilega til á dösnku og við erum að syngja það en bætum inn í það tveimur íslenskum erindum, einu sem allur kórinn syngur saman og svo eigum við þrjú íslendinugarnir að syngja eitt erindi ein. Það er ekki alveg að ganga nógu vel þar sem ég er eina stelpan og ég kemst ekki svo hátt, en við eigum eftir að finna út úr því. Það er samt rosa gaman að heyra allan kórinn syngja saman á íslensku.             

 Síðasta föstudag fór ég til Århus, tapaði mér aðeins í búðum og fór svo heim til Sigrúnar, við fórum saman á jólamarkað arkitektarskólans á laugardaginn sem var mjög flott. Ég var búin að mæla mér mót við Ástu (sem var að vinna á Hótel Skaftafell) og við borðuðum saman í hádeginu, það var rosa kósí að hitta hana aðeins. Svo hoppaði ég upp í lest til Horsens og tók þar á móti Sólrúnu og Jimmy sem voru að koma með lest frá Kaupmannahöfn, það var ÆÐI að sjá þau aftur. Við tókum svo leigubíl heim til Uldum þar sem þetta glataða kerfi er byggt þannig upp að SÍÐAST strætó sem gengur frá Horsens til Uldum á laugardögum fór sömu mínútu og lestin kom (ATH. KL 15:45) þannig að við urðum að redda okkur öðruvísi. Þegar þau voru búin að koma sér inn í herbergi og ég var búin að flytja það sem ég þurfti upp til Pernille (því ég lánaði þeim herbergið mitt) fórum við út að fá okkur pizzu og versla aðeins fyrir kvöldið. Þetta kvöld var jólaþema og við mættum öll með jólasveinahúfur og eins jólaleg og við gátum. Þetta var mjög gaman, þó að kvöldið hafi farið öðruvísi en ég bjóst við, það er líka ekki sniðugt að blanda saman MJÖG MIKILLI þreytu og áfengi auk þess sem var einhvernveginn margt að gerast í hópnum, veit ekki alveg hvað málið var, en þetta varð alla vega mjög furðulegt kvöld. Sunnudagurinn fór svo aðalega í letilíf og spjall.  Á mánudaginn rak ég þau framúr snemma til að koma með mér í tíma, þar sem ég var að fara í kór og gestir ávalt velkomnir með. Það var rosa gaman, eftir mat tók ég þau líka með mér í þæfingu þar sem þau fengu að dýfa fingrunum í sápu ;) um kvöldið sátum við svo bara að sjalla og spiluðum Matador með Ingþóri fram undir miðnætti. Þau yfirgáfu mig svo eldsnemma í gærmorgun eða kl. 6:20 og eru komin til Svíþjóðar núna og Jimmy örugglega geðveikt ánægður. 

Jæja, þar sem þetta er orðið alveg 2,5 tíma lestur ætla ég að hætta þessu, ég lofaði að þetta færi ekki upp í 3 tíma. Þetta er eiginlega ekki sniðugt að vera svona löt að skrifa þar sem að þá nennir enginn að lesa þetta en það er bara þegar tíminn flýgur hratt og tölvurnar eru ekki alltaf lausar þegar mér dettur í hug að reyna að tjá mig eitthvað. Ég vona samt að einhver hafi nógu lítið að gera til að ná að lesa þetta og nenni að kommenta.


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 22:23:21 / dagbok

Þetta fer að verða spurning um að reyna að fá ritstíflu ;) hehe

Það væri kannski hugmynd að reyna að skrifa oftar en minna í einu svo að það fólk nenni að staulast í gegnum þetta babl mitt :D  

 

Allavega, þá var helgin alveg fín, á föstudaginn var jólabjórnum sleppt út ;) = FYLLERÍ  já, ÉG drakk mig fulla af BJÓR....bíddu, var að ekki einmitt það sem ég kom hingað til að gera? Hihi :) Við tókum smá tjútt og svona ;) skellti mér svo í drykkjuleik með krökkunum, sem snérist einfaldlega um það að taka sopa og gefa sopa ;) ég sat við hliðina á Ingþóri (annar af íslensku strákunum sem eru í skólanum með mér) og hann var að gefa mér sopa ásamt fleirum, sendi nokkra þvert yfir borðið og ég spurði hann frekar hissa “bíddu, er þetta ekki kennari?” og ég fékk einfallt og gott svar til baka “jú, það er það besta við þetta “ hehe frekar findið að sitja og drekka með kennurunum ;) svo ætlaði ég nú eitthvað að fara að tjá mig í pool en það tókst ekki alveg eins og ég vildi ;) fókusinn var ekki alveg uppá sitt besta :) en miðað við að strákurinn sem ég spilaði við er búinn að vera hér í 2 mánuði með þessu pool borði þá finnst mér það ekkert mjög slæmt að tapa fyrir honum með 1 kúlu ;) og blindfull. Tókst svo auðvitað að fljúga á hausinn þar sem einhver hafði hellt heilum bjór á gólfið og skemmdi nýju buxurnar mínar, því ég datt á hnéð og rann aðeins, þá kom svona brunafar í þær :(

 

 Á laugardaginn vaknaði ég svo frekar snemma, eða um 10:30, sem er mjög snemmt miðað við að ég skreið upp í rúm og leið útaf rúmlega 3:00 en á lappir skyldi ég drattast og skellti mér í morgunmat. Fór svo að æfa dans frá kl. 11:30 í ca 1,5 tíma, þá ætlaði ég að mæta í leik sem var búið að undirbúa, en það voru allir svo þunnir að það mætti eiginlega enginn og hann var felldur niður. Við fórum bara 4 saman í göngutúr að kirkjunni í staðinn.  Kl. Rúmlega 2 fórum við svo niður í caffée og spiluðum bingó í tæpa 3 tíma eins og ekta eldri borgurum sæmir ;) (þar sem þema helgarinnar var gamalt fólk) Að sjálfsögðu vann ég ekkert frekar en vanalega en þetta var mjög skemmtilegt :D Svo ákváðum við Danielle að fara og fá okkur eina pizzu á þessum ÆÐISLEGA pizzastað, það tekur ekki nema ca 30 mín að búa til eina pizzu, þó að það sé ekki mikið að gera :) og jú jú, þetta var ágætis pizza en mikið sakna ég nú samt Dominos ;) Um kvöldið var svo djamm, við klæddum okkur upp eins og gamlar kellur en þegar við komum niður á caffée þá voru eiginlega engir í búningum, svo Danielli og Pernille fóru aftur upp að skipta, þær voru tvær aðrar sem voru í buningum og ein bað mig um að skipta ekki svo að það yrði einhver í búningu. Þannig að ég ákvað bara að gefa skít í feimnina og vera gömul kella á djamminu þetta laugardagskvöldið ;) sem var bara frekar findið ;) fór samt snemma að sofa miðað við svona íslenskt djamm, var komin í rúmið um 1:30, en var þá samt sem áður búin að vera að drekka í 4 tíma :)

Sunnudagurinn var bara algjörlega í rólegheitum, lá mikið uppí rúmi í leti að horfa á DVD og slaka á.

Á mánudaginn var ég svo eiginlega hálf veik þannig að ég fór ekki í tímana, lagði ekki alveg í það að sitja stíf við píanó í 3 tíma og fara svo í jóga þannig að ég svaf bara og svaf ásamt því að horfa á hálfa seríu af One Tree Hill :)

Gærdagurinn var bara nokkuð eðlilegur eða þannig ;) ég var í silfursmíði allan daginn, var að pússa stein og náði að pússa nokkrar húðfrumur í burtu, bara svona til að tékka hvað mundi ske ;) það kom í ljós að ég varð bara rauð og blóðug en ekki slétt og glansandi eins og steinninn...OH...mig sem langaði svo í svona gljá áferð...prófa barnaolíu næst. Allavega...svo þegar tíminn var búinn vorum við Pernille á leið niður í banka til að sækja okkur Evrur fyrir frakklandsför og Ruben, Sanne og Marie spurðu hvort við ætluðum ekki að koma með í göngutúr, jú jú svörum við og förum af stað. Svo þegar við erum komin svolítið áleiðis og mér er orðið frekar kalt spyr ég...hvert erum við að fara? Hvað er þetta langt?....hmmm við erum að fara í kringum eitthvað vatn (sem ég sá aldrei samt sem áður) og það eru svona ca. 5-6 km í allt. Úffff.....næst ætla ég að hafa vit á því að spyrja fyrir fram svo ég geti klætt mig betur og kannski verið í betir skóm. Því ég var MJÖG köld og þreytt þegar ég kom heim og skellti mér í heita sturtu. Kvöldinu eyddi ég svo í að liggja undir teppi, borða snakk og horfa á DVD ;) það er óþarfi að brenna of miklu á einum degi sjáið þið til ;) hehe

 

Í dag var svo venjulegur dagur í skólanum = skóli fram að hádegi, eftir hádegi afrekaði ég að stytta gallabuxurnar sem ég keypti fyrir einni og hálfri viku og hafa verið að stara á mig síðan þá :) já þið lásuð rétt...Dóra keypti sér gallabuxur í fyrsta skipti í 3-4 ár. Þegar það var búið fór ég með Emme Line og Ingþóri að æfa aðeins á hljóðfæri því við eigum víst að spila fyrir allan skólan á föstudaginn....og ég kann ekki neitt....úpposí...þegar við vorum búin að gefast upp á sjálfum okkur ákváðum við að skipta yfir í dans :) og viti menn, ég afrekaði að ná alveg cha-cha-cha og tangó eiginlega alveg, bæði dömu- og herraspor :) þannig að það má segja að ég sé tvíkynhneigð í tangó ;) hehehe. Eftir kvöldmat var svo tími með söng- og dansmyndum sem fór mjög vel fram: ég sótti teppi og snakkpoka (þann sem ég kláraði ekki í gær og er enn ekki búin að afreka að klára hann, frekar slöpp í þessu) og kúrði mig niður í stól :) á meðan við horfðum á Honey :) frekar næs tími.

hEn núna er ég búin að afreka það að hafa þessa færslu alveg jafn langa og hinar ef ekki lengri svo ég ætla að fara að hætta þessu, enda kominn háttatími :)

Ég ætlaði að setja inn myndir en talvan mín fann ekki myndavélina svo það virkaði ekki alveg núna, finn út úr því :) ég skrifa það pottþétt á bloggið hvenær það verður eitthvað sniðugt komin inn en ég er amk búin að búa til albúmið fyrir þær :D það heitir “Myndir frá Uldum” undir “Myndir”  neðarlega, vinstra megin á bloggsíðunni minni. Þið getið reynt að fylgjast með þar :D En nú ætla ég að segja bless í bili :)


» 13 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 12:18:55 / dagbok

Í haustblídunni í Danmorku

Tad er alltaf gaman ad sja ad tad nennir einhver ad lesa tessar langlokur :) Takk fyrir allar kvedjurnar, vonandi haldid tid bara afram ad vera svona dugleg ;)  

Nú er vikan ad verda búin hér í Danaveldi, reyndar hugsa ég ad hun sé tad lika tarna heima en tad er annad mal :) Tad er mjog gott vedur hér í dag, sól og blída8), bara svona ekta gott haustvedur. Enginn snjókoma eda rigning ;) reyndar rignir laufblodum hér, var smá stund ad venjast tví ad taka ekki kipp tegar eitthvad dettur á mann án vidvorunar. Fyrsta skipti sem tad hlunkadist stórt og feitt laufblad beint a hausinn a mér, var mín fyrsta hugsun: “ohh8|...hvada fuglsbjáni skeit á hausinn a mér” en svo var tetta bara laufblad ad reyna ad svifa tignarlega nidur a jordina en lenti svona klaufalega a einhverju fyrirbæri sem gekk framhjá á vitlausu augnabliki. :$ 

En já, nu er ég buin ad fara i a.m.k. einn tima i hverju fagi (nema kornum, sem byrjar bara i december). Allir morgnar byrja eins, med morgunmat, trifum og morgunstund i skolastofunni. Í morgunstundunum er mismunandi hvad er gert, í gær hélt einn kennarinn fyrirlestur um tvott, umgengni um herbergi og fleira. Í dag var einn smáhópur (ollum nemendum er skipt nidur i nokkra smahópa sem eiga ad vinna ýmis lítil verkefni) med stundina og hann var med keppni milli hægri hlid og vinstri hlid i stofunni, teikna, leika og ýmsar trautir. Tannig ad tetta er mjog fjolbreytt en í ollum morgunstundum er alltaf sungid. 

Silfursmídi var a tridjudaginn og eg reyndi ad kreista fram einhverja sniduga hugmynd fram úr hálfsofandi heilasellum sem voru engan vegin til i svona erfidisvinnu. Tad hafdist tó en svo kemur i ljos hvort útkoman verdur eitthvad nálægt tvi sem eg husadi, tannig ad tad er best ad segja ekkert frá i smáatridum tar til komid er í ljós hvort tetta verdur eitthvad almennilegt. Tad borgar sig ekki ad lofa hálsmeni sem endar svo kannski sem armband eda eyrnalokkum sem enda svo i hring eda einhverju álíka gáfulegu.:haha: Um kvoldid skellti ég mér svo í áhugasvidshóp (bein týding) sem var ad dansa salsa, :Prosa gaman. Einnig var á sama stad hópur sem vann hart í tví ad æfa sig  í tví sem strákar gera, adgangur eingongu fyrir stelpur!!!...tar var mikid spilad fotboltaspil, pool og svo eru odru hverju kennslustundir í tví ad opna bjórflosku med annarri bjórflosku og ýmislegt annad sem strákar telja sig vera svo góda í:lol:, ég held ad takmarkid sé ad vinna tá í tessu.  

Á midvikudaginn fór ég svo aftur í Jazz og Blues, ég er reynar ekki alveg ad finna mig nógu vel tar, tví eina leidin til ad ég geti spilad med er ef ég hef nótur en tær fáum vid ekki alltaf a.m.k. ekki gódar svo ég tarf eiginlega ad skrifa nóturnar til ad geta spilad med. Tar sem ég fékk víst ekki sama tónlistareyrad og hún Steina systir...verst ad ég geti ekki fengid tad lánad ;) eda bara sent hana í tíman fyrir mig hehe. En tetta er voda gaman samt. Eftir hádegi ætladi eg ad fara a hestbak med fullt af krokkum úr skólanum, en ákvad í stadin ad fara med flestum nyju stelpunum (ásamt fleirum) til Vejle ad versla. Vid erum svo 3 sem ætlum bara ad fara sjalfar og leigja okkur hesta seinna. Ég versladi nú ekki mikid en nádi tó ad kaupa mér sundbol tannig ad nu hef ég a.m.k. kost á tví ad nota sundlaugina, klikkadi reyndar á tví ad kaupa mér sundglaeraugu tannig ad ég get ekki farid ad synda eitthvad markvisst strax:whut:. Tad verdur ad bída adeins lengur, enda ágætt ad byrja ekki á ollu í somu vikunni. A midvikudagskvoldid var tonlistar- og dansmynda áfangi sem var rosa kósí, hann fólst í tví ad vid mættum oll inn i skolastofu og horfdum a Footloose a stóru tjaldi,:haha: med kók og nammi.   

Fimmtudagurinn byrjadi eins og allir hinir dagarnir og svo tóku vid tveir tímar í dansi, tad var geggjad gaman. Vid lærdum grunnatridin í cha-cha-cha, tango og quik-step og ótrúleg en satt, haldid ekki ad mín hafi bara haldid tetta út á hælum :D nokkud gott afrek tar sem eg er ALLS EKKI von ad ganga a hælum. Svo eftir hádegismat var fundur um Frakklandsferdina sem vid erum ad fara i eftir rúma viku. Tegar hann var búinn ákvad ég ad leggjast í leti og skreid undir sæng ad horfa a DVD :) Kvoldid var líka bara í leti, ég horfdi á endirinn af Pirates of the Carabian 3 med krokkunum og skreid svo aftur upp í rúm. Ótrúlegt hvad er hægt ad vera treytt, en tad er svona tegar madur sofnar ekki fyrr en um eda eftir midnætti og vaknar rétt fyrir 7, tad er bara ekki nog. En tad hefur aldrei verid min sterkasta hlid ad sofna snemma.  T.d. i fyrradag fór ég upp í rúm kl. 21:30 en sofnadi samt ekki fyrr en rumlega midnætti.   

Í dag er ég búin ad vera í djazz og blues og er á leidinni í tæfingu nuna eftir smá stund. Svo er aldrei ad vita nema ég fái mér einn bjór í kold, svona í tilefni tess ad tad er fostudagur :) Á morgun er svo minn gangur med kaffid (litla barinn nidri i kjallara) og a ad skipuleggja helgina. Tad er eldra folks helgi :) tess vegna ætlum vid ad spila bingó og svoleidis :D ég segi meira frá tví næst. En nú ætla ég ad drífa mig í tíma og kannski tæfa nokkrar jólagafir ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 18:44:51 / dagbok

Fyrsti skóladagurinn búinn :)

Jæja allir tharna heima a klakanum, nú ætla ég ad reyna ad tjá mig eitthvad med donsku lyklabordi. Geri mitt besta en stafsetninga- og innsláttarvillur eru hér med leyfilegar :)

Ég byrjadi sem sagt á thví ad eyda frábærri viku hjá Sigrúnu og familiu ;) thar sem var mikid hlegid og skemmt sér, verst hvad Silja litla var lasin svo hún gat lítid verid med. 

Svo á laugardaginn skutludu Sigrún og Gudjón Steinn mér í skólan, thar var tekid vel á móti mér og ég fékk risa herbergi, numer 13,  med badherbergi fyrir mig aleina ;) Tegar buid var ad bera allt draslid mitt nidur i herbergi tha fengum vid okkur adeins ad drekka og svo fóru thau og skildu mig aleina eftir, hikstandi a donsku. Ég laumadi mer sem sagt inn í matsalinn tar sem var ad hefjast kvoldmatur, fékk mér á disk og hvarf ofaní eitthvad sæti eftir ad hafa hikstad upp spuningu um hvort ég mætti sitja hér. Eftir kvoldmat vorum vid nynemarnir teknir á teppid. Vid erum ekki nema 8 svo tad er svolítid erfidara ad komainn í svona hóp…70 manns. En thad hafa allir verid rosa næs, margir hafa bara nánast stokkid á mann til ad kynna sig og ég er alveg farin ad spjalla vid nokkra svona eitthvad ad rádi, vid nyju stelpurnar holdum samt mest saman nuna til ad byrja med :) En ja, a laugardagskvoldid var sem sagt singstarparty á caffeé-inu okkar hér nidri og mín ákvad audvitad ad vera memm svona til ad byrja ekki á tvi ad sitja inná herbergi. Rolti mer nidur, fann Danielle sem ég er buin ad vera svoldid med og settist hja henni. Sotradi tager tvo bjora eda svo, ta voru nokkrar stelpur sem drógu okkur med í drykkjuleik, ég slapp vel en nádi samt ad slátra 4 bjorum og 1 breeser tetta kvold…var sem sagt ”pinu” lett strax fyrsta kvoldid og hringdi i Solrunu bara til ad segja henni ad ég væri skidfull ;) hehe.

A sunnudaginn var  Molkost (morgunmatur og hádegismatur saman) svo var farid med okkur í svona rúnt um skólan, haldinn fyrirlestur yfir okkur um reglur her og tar og helstu atridi útskýrd. Svo voru ávextir og braudbollur á bodstolnum. Seinnipartinn voru strakarnir i skolanum ad keppa i fotbolta nidri i bæ en tar sem ahugi minn a tvi er takmarkadur og tad var kalt uti og rigningarlegt, ta hljomadi rumid mitt og biomynd mikid betur ;) svo eg var bara i leti til kl. 6 ta var kvoldmatur og svo eftir tad var svona formlega verid ad bjoda okkur velomin, skolastjorinn helt rædu og vid sungum nokkur log, bordudum koku og hofdum tad gott. Svo gerdi ég mitt besta í ad horfa a danskan spennutatt sem allir eru a kafi í, skildi ekki mikid en to eina og eina setningu. Eftir tad spjalladi eg adeins vid mommu og pabba og for svo bara i hattinn.

En svo er tad dagurinn i dag. Fyrsti skoladagurinn. Vaknadu um 6:30 skellti mer i sturtu og svo i morgunmat tar sem eg slafradi i mig frekar slæmum hafragraut tvi eg nennti ekki ad sækja salt a næsta bord og eg gleymdi tvi ad danir sykra hafragrautinn sinn...ógedslegt ad sja tegar sumir setja tykkt lag af sykri a og bida svo tar til hann er bradnadur og borda svo hafragraut med glassur med bestu lyst...ojojoj. Eftir morgunmatinn for eg nidur i gangkøkkenet (eldhusid sem tilheyrir minum gangi) og beid tar eftir ad hinar tvær stelpurnar mættu til ad segja mer hvad ég ætti ad gera tvi nu voru trif i hálftima. Rosa trif madur... eg vaskadi upp 3 glos og 1 disk,  turrkadi og gekk fra tvi, turrkadi af 3 bordum og svo var eg buin. Fekk ad vita ad tad væri bara eitt sem madur tyrfti ad passa sig a, tad er sem sagt mus i skapnum undir vaskinum og tess vegna tarf madur, adur en madur tæmdi ruslid tarna, ad sparka adeins i skapinn fyrst, svo musin nai ad forda ser :) dettur engum i hug an na henni bara????? Frekar findid. Svo forum vid i morgensamling (morgunfundur einhverskonar) tar sem einn kennarinn helt svaka rædu um rafmagnsorgel og kosti tess ;) (eg skildi reyndar ekki allt) en tetta var frekar findid tar sem orgelid for svo ad gefa fra ser hljod sjalft i tima og otima  tannig ad lofrædan hans endadi med tvi ad hann var ad sparka lett og banka i orgelid til ad fa tad til ad halda kjafti. Vid sungum nokkur log og svo var haldinn kynning a ollum fogunum adur en vid turftum ad velja og afhenda blodin.

Ég valdi mér: Silfursmídi, tæfingu, dans, Yoga og hugleidslu, Tónlistar og dansmyndir, Kór (i desember) Jazz og Blues (i november)

Svo mættum vid i fyrsta fagid, mitt var jazz og blues :) tad virkadi bara mjog skemmtilegt, vid erum einhvers  stadar um 15 manns sem spila saman i hljomsveit held eg, tetta var bara fyrsti timinn en eg tarf ad æfa mig adeins a pianoid fyrir midvikudag...heimavinna.!!! ;) Svo var haldid i hadegismat med ollum teim skilabodum og postutdeilingum og fleira sem tilheyrir tvi ;) Eftir mat for eg i tæfingu, tar sem eg byrjadi ferilinn a tvi ad tæfa frekar kjanalegt blóm, eda amk eitthvad sem atti ad vera blom. Svo kom klukkustundarpasa sem 4 af okkur nyttum til ad kikja a risa verslunina sem er her i bænum ;) hihi, tetta er bara mjog hugguleg litil bud :) minnir mig helst a verslunina a Kirkjubæjarklaustri. Svo la leidin i Yoga og metitaion (yoga og hugleidlsu) tad var bara kosi, en eg skildi reyndar ekki allt sem hann sagi i hugleislunni svo i stadin fyrir ad vera i einhverju moki a hamingjustadnum minum, ta var eg ad hugsa um tad i hverju eg ætladi ad vera i kvold ;) hehe en slakadi samt a :) Ég kom svo eiginlega beint ur Yoganu i kvoldmat og tadan hingad upp a tolvustofu til ad deila tessu med ykkur.

En nuna ætla eg ad yfirgefa ykkur aftur tar sem eg er ad vera of sein i sturtu og a caffeé-skemtikvold :)Vonandi er einhver sem nennir ad lesa tessa rosalongu færslu a einhverju oskiljanlegu mali ;) tid verdid ta bara ad taka hana i hollum dullurnar minar, en mikilvægast af ollu er to ad tid munid ad kvitta :D


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 23:01:34 / dagbok

Í Danaveldi

Jæja gott fólk.

Þá er ég komin til Danmerkur, er reyndar enn bara hjá Sigrúnu systur, er ekki byrjuð í skólanum svo ég get ekki sagt neitt slúður þaðan. Það kemur í næstu viku :) Hérna úti hefur lítið gerst svo ég er ekkert að eiða mörgum orðum í það núna.

Áður en ég fór tók ég hins vegar eitt svakalega gott djamm í Reykjavík þar sem við vorum að halda Reykjaskóla Reunion sem tókst mjög vel þrátt fyrir endalaust vesen með staðsetningu. Það var fámennt en góðmennt og ég skemmti mér allavega ROSA vel :) vona að aðrir hafi gert það líka. Núna Fyrir síðustu helgi fór ég svo í bæinn með allt mitt hafurtask, plantaði mér svo á sólon til að spjalla við þá sem máttu vera að því að koma að hitta mig :) rosa kósí :) Tók svo rúnt með Manu þar til Steina var búin að vinna, fór þá með henni upp í Grafarvog (eftir mjög góða pizzu á Eldsmiðjunni) og við horfðum á DVD með pabba, eða réttara sagt, við horfðum, hann svaf :) hihi Svo á föstudaginn fór ég í klippingu og var að vesenast með Steinu sys...takk fyrir það sætust ;) Fór svo til Hjördísar og Magnúsar, knúsaði þar aðeins Patrek litla og þau líka :) Júlí kom svo í bæinn og við skelltum okkur á kaffihús á meðan við biðum eftir Sólrúnu sem kom með rútunni :) svo var brunað á Tapas og skellt í sér einni 7 (smá)rétta máltíð...nammi, nammi, namm :) uppdeitað nýjasta slúðrið og haft gaman af :) Svo vorum við búnar að borða um 21:30 (fórum að borða kl 20:00) við erum sko ekki lengi að slafra þessu í okkur. Þá vissum við ekkert hvað við áttum að gera, svo við skelltum okkur í bíó :D á mynd sem ég get ekki skrifað nafnið á og nenni ekki að leita að því núna, svo þið verðið bara að lifa í óvissunni :) Þetta var allt voða kósí og Júlí skutlaði okkur Sólrúnu heim til Siggu frænku um 1 leitið. Við eyddu svo saman síðustu nóttinni minni á Íslandi í bili :) Steina, Röggi og Sólrún fylgdu mér svo út á flugvöll daginn eftir :) og hér er ég núna, í Danaveldi að vaka alltof lengi (klukkan er sko 01:00 hjá mér, veit ekki hvernig hún kemur á færsluna) þar sem ég verð sennilega vakin af krökkunum eldsnemma í fyrramálið :) þannig að það er mál að fara að koma sér í háttinn. Bið að heilsa ykkur í bili og ég lofa að reyna að vera duglegri að blogga núna, vona bara að það sé góður aðgangur að netinu á heimavistinni :) sjáum til :D

Hafið það gott og endilega sendið mér kveðjur og slúður að heiman :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 16:28:39 / dagbok

allo allo

Það er nú ekki svo langt síðan ég bloggaði síðast, enda hefur lítið gerst síðan þá. Við Sólrún fórum í bæinn  fimmtudaginn 20. sept. Með mömmu og pabba. Við urðum eftir á Selfossi,ég hjá Júlí og Sólrún hjá Dúddu. Við Júlí áttum mjög kósí kvöld í að kjafta, enda hefur það hingað til ekki verið mjög erfitt fyrir okkur. Á föstudagsmorguninn fór ég svo til tannlæknis og fékk að vita það að mér væri óhætt að fara til Danmerkur, tennurnar mínar myndu þola það ;) Steina æðislega litla systir kom svo úr bænum að sækja okkur Sólrúnu á Selfoss og við fórum í bæinn að eyða peningum. Um kvöldið fórum við Sólrún út að borða með Tangi, sem var að fara út…veit ekkert hvort og þá hvenær ég sé hana aftur. Við áttum rosa gott kvöld, góður matur og kósí. Lóló kom og fékk sér einn drykk með okkur eftir á. Steina og Röggi sóttu okkur svo niður í bæ og eftir smá rúnt upp á höfða fórum við heim til þeirra og fengum að lúra þar :)  Daginn eftir tókum við svo laugarvegsrölt með Hjördísi og Patreki, ég þurfti reyndar að stinga fljótt af til að sækja mömmu og pabba á hótel í bænum, þau voru að tékka sig út.  Svo var haldið áfram að spreða peningum. Á laugardagskvöldið fórum við Sólrún og Hjördís í Smáralindina til að hitta gengið sem var á heimavistinni í Þóristúni. Við borðuðum saman á Fridays og fórum svo niður í bæ, rosa fjör :) skreiddumst heim til Steinu um miðja nótt Á sunnudaginn vakti pabbi okkur um hádegi til að leggja af stað heim. Þetta var rosa næs helgi en mikið var ég samt þreytt ;) síðan þá er ég bara búin að vera að vinna og vinna, ekki veitir buddunni af þar sem það styttist óðum að ég fari að fara út. Það er orðið skuggalega stutt í þetta, er farin að kvíða pínu fyrir þó ég hlakki mikið til líka. En þetta reddast einhvern vegin :D Ég er svo að fara í bæinn um næstu helgi á annað reunion 10 ár síðan góður hópur fór á Reykjar J það verður geggjað stuð. Jamm jamm en þangað til næst J bið að heilsa ykkur og endilega commentið :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 19:52:56 / dagbok

enn finnst eitthvað lífsmark

Jamm jamm og jæja já, ég er engan vegin að standa mig í þessu. Enda er enn sumar hjá mér, þar sem ég er enn að vinna, þannig að tíminn er af skornum skammti. Sumarballið í ágúst gekk vel, það var reyndar ekki alveg nógu mikil mæting, en rosa góð stemming samt. Sólrún mætti í sveitina aftur og er búin að vera hér síðan og bjarga minni félagslegu geðheilsu :)

 

Annars eru nýjustu fréttir að ég er búin að panta mér flug út, laugardaginn 20. október og tíminn flýgur, mér finnst eins og ég sé nýbúin að ákveða að fara en nú er bara alveg að koma að þessu. Þá er eins gott að guggna ekki á síðustu stundu ;) þarf einmitt að byrja á því að koma mér af flugvellinum í Billund (sem ég hef aldrei komið á áður) og heim til Sigrúnar og Skúla í Århus, þar sem þau eru upptekin og geta ekki tekið á móti mér. Það verður fyrsta prófið hvort ég meika það að flytja til Danmerkur :) en ég hef ekkert stórar áhyggjur.

 

Við Sólrún fórum í skírn austur á Höfn um daginn hjá Sigursteini Ingvari. Það var rosa kósí að komast aðeins til Hugrúnar og Trausta, við lágum eins og klessur eftir veisluna og kjöftuðum fram á kvöld.

 

Annars er ég bara að vinna, er komin inn á hótel að vinna. Er svo á leið í bæinn um helgina til að skella mér á reunion með Þóristúnvistinni á selfossi :) auk þess sem ég þarf að gera hitt og þetta. Jæja, þetta er ekki merkilegt blogg en vonandi les þetta samt einhver og hefur dug til að kommenta eitthvað sniðugt. En nú þarf ég að fara að vinna þannig að ég bið að heilsa ykkur í bili.


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 20:17:31 / dagbok

Vá sumarið er að verða búið!!!!!

Jahá góðir hálsar og hausar :)

Sumarið er að verða búið, verslunarmannahelginni er lokið og þá er lítið orðið eftir af sumrinu...amk fyrir þá sem eru að fara í skóla ;) en þar sem ég verð í sumarfílingi fram í október, þá er þetta allt í lagi. En já, það er búið að vera MJÖG mikið að gera svo að internetið hefur alveg setið á hakanum í allt sumar. Ég ætla því bara að stikla á stóru (enda er ekki mikið búið að gerast) En sem sagt, þann 25 júní hélt ég af landi brott með Sólrúnu og Júlí, við skelltum okkur í sólina á Mallorca. Það var rosalega næs að vera í viku bara að hugsa um það hvar maður ætlaði að borða næst...og það gat sko verið hausverkur skal ég segja ykkur :) hihi þrátt fyrir mína náhvítu húð þá náði ég samt að fá far eftir sundfötin og tel það nú bara nokkuð gott :D og auðvitað fékk ég alveg FULLT af freknum. Þetta var rosa gaman, við fórum einu sinni á djammið, hittum einhverja þýska stráka...undur og stórmerki...það var ég sem var með strákinn núna. Það hefur bara aldrei gerst áður í þessu tríói :) hann bauð okkur öllum í glas amk 2 sinnum og dró okkur á dansstað þar sem voru nánast bara þjóðverjar. Hann varð sko að fá að hlusta á uppáhalds DJ inn sinn sem var... nota bene ... þýskur. Þetta var allt saman mjög findið og við fórum svo heim á undan strákunum, ég fékk nú samt ekki einn koss út úr þessu...frekar spæld, en frítt áfengi :haha: það gagnaðis okkur nú reyndar miklu betur hvort sem var :) Þetta var rosa gaman allt saman, komum heim viku seinna, ég MJÖG sólbrunnin en það breyttist í lit á endanum :) verst að ég hef ekkert getað verið í sól síðan þá svo þetta er allt að fara af :S

Daginn eftir að við komum heim, eignuðust Hugrún og Trausti lítinn prins á sjúkrahúsinu á Selfossi, ég kíkti á þau á leiðinni heim og er ekki frá því að það hafi nú klingt pínu lítið í minni.

Eftir Mallorca var bara að hella sér á kaf í vinnu (til að eiga fyrir visa reikningnum) gerði eiginlega ekkert markvert allan júlí, kíkti einu sinni á Hugrúnu, Trausta, Sigurstein Ingvar og Sesar :) það var rosa kósí að koma til þeirra, verst hvað hann hafði verið óvær litli kútur og þau voru öll pínu þreytt, vonandi er það nú samt að lagast núna. Dúdda og Alli droppuðu hér við í augnablik í lok júlí, það var ótrúlega gaman að sjá þau :) nú hafið þið komið í fallegustu sveit landsins :haha: Ég skellti mér á ball á Klaustri um verslunarmannahelgina, bara svona eins og vanalega. Var auðvitað blindfull því ég hef ekkert drukkið í allt sumar (nema á Mallorca) svo það er stutt í kjúkliginn :D Mikið rosalega vantaði samt Sólrúnu á ball :) það er ekki orðið ball hér án þín stelpa...viltu gjöra svo vel að koma hingað :D hehe Reyndar get ég ekki mikið skammast í henni þar sem það er nú á planinu að hún komi hingað að vinna seinna í ágúst :) hlakka mikið til. 

Það er sem sagt alveg skammarlega lítið búið að gerast hjá mér í sumar...ekkert djamm, ekkert slúður. Hef ekki einu sinni farið í bæinn eða á selfoss að heimsækja Júlí...uss uss uss...en svona er það þegar maður er blankur að borga skuldir. Allaveg er ég sem sagt að fara til Danmerkur í október, svona fyrir þá sem vita ekkert, í Lýðháskóla í 4 mánuði. Byrja 28. október :) hlakka rosalega til :D þannig að þangað til er bara að VINNA VINNA VINNA og vinna pínulítið meira þess á milli :)

Svo ætla ég hér með að auglýsa að það er ball í Hofgarði í Öræfum föstudaginn 17. ágúst með Veðurguðunum. Ekta sveitaball, flöskuball :) svo allir að mæta og skemmta sér vel :D slútta sumrinu með ærlegu djammi....SKÁL 


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 18:56:03 / dagbok

Undur og stórmerki, hún er á lífi!!!!!!!

Halló allir

Gleðilegan þjóðhátíðardag :)

Ég er engan vegin búin að vera að standa mig í blogginu núna...ussss...en hér kemur sem sagt formleg staðfesting...ég er á lífi. Þannig að þið getið andað léttar :) Hef ekki mátt vera að því að blogga þó að þa hafi alveg eitthvað gerst síðan síðast. T.d. kláraði ég að taka þessi 2 próf sem ég ætlaði í...féll reyndar í öðru þeirra (bara útaf því að lámarkseinkunnin var svo há) ..en það verður að hafa það. Daginn sem ég tók síðasta prófið var evrovision dagurinn :) þannig að það var mikið fjör, við Sólrún Irena og Júlí vorum heima hjá Hjördísi að passa meðan keppnin var (þau voru í afmæli) og svo þegar þau komu heim þá fórum við Sólrún, Júlí og Hjördís á Nasa, Eurovisiondjamm með Palla. Það var geggjað gaman, FULLT af fólki, partýbombur og blöðrur í loftinu sem hrundu niður á mann í tíma og ótíma :D geggjað gaman. Röltum svo heim sárfættar og þreyttar, en samt mjög sáttar við kvöldið. Ég fór svo bara í það að pakka niður, og koma mér heim. Eftir að hafa skotist heim með Steinu til að vera á skyndihjálparnámskeiði fór ég suður aftur til að ná í dótið mitt, pabbi kom líka til að taka húsgögnin mín og ég er semsagt formlega flutt heim aftur. Er svo bara búin að vera að vinna á fullu, skrapp reyndar einn dag á Höfn um mánaðarmótin, kíkti á Hugrúnu bumbulínu og Trausta frænda :) og er búin að vera að vinna síðan. Er búin að fara í tvö partý í Freys í vor...það var geggjað gaman..er reyndar með stóran marblett eftir síðasta partý því stelpurnar stukku á Rakel þegar við sátum úti að tala saman (á plaststólum) einhvernvegin duttu þær svo ofaná stólinn minn og brutu lappirnar undan honum...eða ég lá allavega allt í einu á jörðinni við hliðina á Rakel...frekar findið. Það kvöld var reyndar líka rjómatertuslagur en ég forðaði mér fljótt í burtu því ég var í lopapeysu og nennti ekki að þvo rjóma úr henni. :D Já ég gleymdi að ég fór líka á rallíball á Klaustri um hvítasunnuna. Það var fínt, hitti fullt af fólki, var mjög drukkin og skemmti mér vel :) hehe

Í dag vorum við svo að halda upp á 17. júní, fórum í leiki og grilluðum pylsur. Þar sem ég stóð við grillið nánast allan tímann, þá anga ég eins og grilluð pylsa...nammi namm. Vantar bara smá sinnep og ég er good to go :D hihi

Annars er svo núna næst á dagskrá að standast sunlaugarvarðapróf sem við förum í í vikunni og þegar það er búið, þá er bara MALLORCA !!!!!!!! VEII...það verður geggjað gaman :) Get ekki beðið :D 

En nú verð ég að fara að gera eitthvað, amk skipta um föt áður en einhver étur mig :) hehe 


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 18:00:41 / dagbok

Tíminn líður of hratt :o/

Hæ hæ, allir saman. ég er sem sagt komin í bæinn núna til að læra fyrir próf, sem gengur ansi hægt. Get ekki sagt að áhuginn sé að drepa mig :( en það verður víst að hafa það, er að reyna að kvelja mig áfram samt. Það er samt svolítið erfitt því að það er ekkert sem raunverulega sparkar í rassinn á mér og segir að ég VERÐI að ná þessum prófum. Því ég er búin að ákveða að ég ætli ekki að halda áfram í hákslólanum í haust og þar sem ég sagði mig úr hluta af áföngunum á þessari önn, þá er ég búin að missa af námslánunum hvort sem er. Þannig að það liggur engin pressa á mér núna eins og gerði síðast. Nema bara að láta ekki önnina fara til einskis. Ef ég fell, þá bara fell ég og þarf ekkert að taka þetta aftur.  Hins vegar er ég svona næstum því búin að ákveða að fara til Danmerkur í lýðháskóla í haust. Ætla að spjalla við Hörpu núna eftir helgina til að fá meiri upplýsingar þar sem hún var í þessum skóla síðasta haust. Og svo er bara að sækja um og vona að ég komist inn. Það væri nú voða notalegt að geta verið nær Sigrúnu og fjölskyldu, geta aðeins spillt krökkunum og svona :) hehe.  Auk þess að ég veit að það verður mjög gaman að fara út og prófa eitthvað nýtt.  Segi ykkur betur frá þessu þegar það er endanlega ákveðið :)

En annars þá er ég búin að hafa það gott hér í bænum síðustu vikuna. Búin að hitta Steinu og Rögga, reyndar var Steina með lungnabólgu og lá hjá mér lasin í 2 daga, svo það var ekki alveg nógu skemmtilegt fyrir hana greyið. Sólrún er búin að koma til mín, í videogláp og gaman. Ég fór í mat til Hjördísar, Magnúsar og Patreks um daginn. Skellti mér í ungbarnasund, fyrsta tímann minn :) reyndar með Patreki og Hjördísi, það var sem sagt ekki verið að kenna mér að synda ;) þó að það liti út fyrir að vera mjög gaman að standa svona í höndunum á kennaranum, þá er ekki víst að það liti eins vel út hjá mér eins og hjá Patreki :) hehe.  Við Sólrún fórum á Éyrabakka í gær, fórum á hestbak með Júlí sem var rosa gaman, nema það að ég man ekki eftir því að hafa einhverntíma verið svona stíf í öxlunum áður, ég get varla hreyft þær, lennti í smá slagsmálum við hestinn, ég vildi stoppa en ekki hann...auk þess sem Sólrún var á undan mér á harðastökki, ekki í öðru ístaðinu og ég var svo hrædd um hana að ég gat ekki einbeitt mér að því að róa minn reiðskjóta niður. Þegar mér tókst á endanum að hægja á og stoppa þurfti ég að fara af baki þar sem bæði hnakkurinn var kominn fram á eyru á hestinum, múllinn var slitinn og ég gat varla rétt úr fingrunum...svo mikil voru átökin...enda var ansi sársaukafullt að standa upp úr rúminu í morgun. Þó að ég sé ekkert aum miðað við Sólrúnu ;) Svo fórum við heim á Eyrabakka með pizzu handa okkur og Halldóri, þar sem hann var að taka sig til fyrir partý sem hann var að halda fyrir bekkinn sinn :) við, Sólrún og Júlí höfðum það huggulegt útí bílskúr á meðan með spil og nammi þannig að við værum í kallfæri ef eitthvað kæmi uppá, því Sigga og Tyrfingur voru ekki heima. Við fórum að skipuleggja sumarfríið okkar og spjalla, voða gaman :)  Seinna um nóttina fórum við svo inn að horfa á DVD, fórum að sofa seint, vöknuðum um miðjan morgun og héldum áfram að horfa á DVD í algjörri leti :) Svo tókum við Sólrún rútuna klukkan 4 í bæinn aftur. Þetta var voða skemmtilegur sólarhringur, þó ég geti varla skrifað fyrir harðsperrum :) hehe

Jæja, það þýðir víst ekki að vera að slóra svona, best að fara að reyna að læra eitthvað. Það er reyndar spurning hvort ég nái að lyfta bókinni ;) hehe


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 40533
Könnun
Á að skella sér á Góuhóf í Öræfum




Dúllurnar mínar í DK :)
Myndasöfn